Tækninefnd karla
Tækninefnd í áhaldafimleikum karla FSÍ (TK) stendur fyrir dómaranámskeiðum og útskrifar dómara sem mega dæma þrep hins íslenska fimleikastiga. Dómgæsla og aðrar reglur sem líta að dómurum taka sem fyrr mið af gildandi útgáfu af Code of Points (COP) útgefið af Alþjóða fimleikasambandinu (FIG).
Skyldur dómara
- Dómarafundur er haldinn á keppnisstað klukkustund áður en keppni hefst.
- Alþjóðlegur dómaraklæðnaður er gráar buxur, ljós skyrta, bindi og dökkblár jakki.
- Á FSÍ mótum er leyfilegt að dómarar klæðist dökkum buxum, ljósri skyrtu og dökkleitum jakka, bindi væri kostur en ekki skylda.
Skyldur yfirdómara
- Yfirdómari er útnefndur af TK fyrir hvert mót og sér um að leysa vafaatriði sem kunna að koma upp á mótsstað.
- Úrlausn vafaatriða skal tilkynnt til tækninefndar, svo að TK geti leitað leiða til að koma í veg fyrir slík atriði í framtíðinni.
- Hann hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á allri dómgæslu á mótinu ásamt því að sjá til þess að skipulagi TK sé framfylgt.
- Hann heldur dómarafund og yfirfer áhöld á mótsstað.
- Yfirdómari er til staðar þar til verðlaunaafhendingu er lokið.
Störf dómara
- Stefnt skal að því að aldrei séu færri en 2 dómarar í dómaragengi og sé þess einhver kostur aldrei færri en 3 dómarar í 2. og 1. þrepi.
- D dómarar eru ábyrgir fyrir upphafseinkunn / D einkunn.
- E dómarar sjá um að dæma framkvæmd / E einkunn.
- Yfirdómari á áhaldi er ábyrgur fyrir upphafseinkunn, ávarpar keppendur fyrir keppni á sínu áhaldi og sér til þess að ritari, tímavörður og línuverðir sinni sínum störfum.
- Yfirdómari áhalds er oddamaður ef upp koma vafaatriði og kallar á yfirdómara ef nauðsyn krefur.
- Yfirdómari situr við hlið ritara í tveggja manna dómaragengi, en í miðju ef dómarar eru fleiri.
- Yfirdómari á áhaldi er til staðar þar til verðlaunaafhendingu er lokið.
Uppbygging einkunnar
- Einkunn í áhaldafimleikum byggist upp á tveimur einkunnum, D einkunn og E einkunn.
- D einkunn samanstendur af erfiðleikagildum, sérkröfum og bónusum fyrir samtengingar.
- E einkunn byrjar í 10,0 og frá henni dragast framkvæmdarvillur.
- Frádrættir geta verið: 0,1, 0,3 og 0,5, fyrir fall er tekið 1,0 frá.
- Meðaltal E einkunna er fundið og lagt við D einkunn til að fá lokaeinkunn.
- D dómarar geta einnig starfað sem E dómarar.
- Allur almennur frádráttur á framkvæmdarhluta æfinga, svo sem í stöðuhlutum og sveifluhlutum, er samkvæmt FIG og er vísað í frádráttartöflur COP í sambandi við þær villur.
- Til hægðarauka hafa frádráttartöflurnar verið þýddar og settar í Íslenska fimleikastigann.
- Komi upp ósamræmi á milli þýðingar og COP, skal notast við töflurnar úr COP.
- Að auki eru sérstakir frádrættir fyrir Fimleikastigann sem finna má í sér töflu eða með lýsingu æfinga á áhöldum.
Allar athugasemdir, spurningar eða ábendingar varðandi fimleikastigann skulu sendar á netfangið fsi@fimleikasamband.is og þurfa að berast með góðum fyrirvara fyrir mót á vegum FSÍ.
Æfingar stigans eru gefnar út á myndbandi á internetinu og í þessu handriti. Rísi ágreiningur vegna túlkunnar á framkvæmd æfinga ber að fylgja texta handritsins. Komi upp vafaatriði á mótum FSÍ er það í verkahring yfirdómara mótsins að taka ákvarðanir um niðurstöðu, komi það hvergi fram í gögnum Fimleikastigans.
Almennar dómarareglur
Þýtt úr Code of Points
Reglur varðandi hegðun þjálfara og keppanda
Brot | Refsing |
---|---|
Brot á búningareglum. Fimleikabolur, síðar buxur og sokkar á áhöldum. Stuttar buxur leyfðar á stökki og gólfi. Vera með rétt keppnisnúmer | 0,3 af heildar lokaeinkunn |
Virðir ekki upphitunartíma | 0,3 |
Heilsar ekki dómara eða endar ekki æfingu | 0,3 í hvert sinn |
Hefur ekki æfingu innan 30 sek frá merki dómara | 0,3 |
Hefur ekki æfingu innan 60 sek frá merki dómara | Æfingu lokið |
Hefur ekki æfingu innan 30 sek frá falli | 0,3 |
Hefur ekki æfingu innan 60 sek frá falli | Æfingu lokið |
Fer aftur að áhaldi eftir að æfingu lýkur | 0,3 |
Þjálfari talar við fimleikamann í æfingu | 0,3 |
Önnur hegðun sem ekki er við hæfi í íþróttakeppni (óíþróttamannsleg hegðun) | 0,3 |
Brot á reglum í liðakeppni
Brot | Refsing |
---|---|
Ekki keppt í réttri röð á áhaldi | 1,0 á hverju áhaldi |
Ekki keppt í réttum búningi | 1,0 af heildareinkunn liðs |
Hegðun þjálfara sem ekki á við í íþróttakeppni (óíþróttamannsleg hegðun) | 1,0 í fyrsta sinn, 1,0 í annað sinn og þjálfara vísað af keppnissvæði |
Brot á áhaldareglum
Brot | Refsing |
---|---|
Þjálfari þar sem hann má ekki vera | 0,5 |
Slæm meðferð á áhöldum (magnesíum) | 0,5 |
Auka dýnur án leyfis yfirdómara | 0,5 |
Ekki notaðar öryggisdýnur þar sem þær eiga að vera | 0,5 |
Þjálfari færir til dýnur í miðri æfingu | 0,5 |
Áhald hækkað án leyfis | 0,5 |
Gormum bætt við eða teknir úr bretti | 0,5 |
Önnur brot í einstaklingskeppni
Brot | Refsing |
---|---|
Fjarverandi frá keppnissvæði án leyfis | Fær ekki að ljúka keppni |
Fjarverandi í verðlaunaafhendingu á leyfis | Árangur ekki skráður í liða og einstaklingskeppni |
Hefur æfingu áður en dómari gefur merki | Fær 0,0 í einkunn á viðkomandi áhaldi |
Sérstakur frádráttur í Fimleikastiganum
Brot | Refsing |
---|---|
Æfingar ekki gerðar í réttri röð | 0,3 |
Auka sveifla á hringjum eða tvíslá í 4.,5. Og 6.þrepi. Auka krets á boga eða svepp | Ekki tæknileg villa, en tekið frá fyrir framkvæmd |
Frádráttartafla fyrir of fáar æfingar
Brot | Refsing |
---|---|
4 æfingum sleppt | -0,5 |
5 æfingum sleppt | -1,0 |
6 æfingum sleppt | -2,0 |
7 æfingum sleppt | -3,0 |
Engin æfing framkvæmd | -10,0 |
Framkvæmd og listfengi
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Ekki greinileg staða (samanbogin, vinkluð eða bein) | X | X | X |
Laga grip handa eða grip | X | ||
Gengið eða hoppað í handstöðu í hvert sinn (hvert skref/eða hopp) | X | ||
Áhald eða gólf snert | X | ||
Áhald eða gólf snert með krafti | X | ||
Fimleikamaður snertur en ekki aðstoðaður í æfingu | X | ||
Rof á æfingu án þess að falla á eða af áhaldi | X | ||
Bognir fætur, bognar hendur, fætur í sundur | X | X | X |
Léleg líkamsstaða eða líkamsstaða aðlöguð í endastöðu | X | X | X |
Heljarstökk með fætur eða hné í sundur | ≤ axla breidd | > axla breidd | |
Fætur sundur í lendingu | ≤ axla breidd | > axla breidd | |
Ójafnvægi eða litlar aðlaganir á fótum eða miklar sveiflur handa í lendingu | X | ||
Misst jafnvægi í lendingu án þess að detta eða fá stuðning með höndum (mest 1,0 í heild fyrir skref og hopp) | Lítið ójafnvægi Lítið skref eða hopp 0,1 hvert | Stórt skref eða hopp eða dýna snert með 1 -2 höndum | |
Fall eða stuðningur með 1 eða 2 höndum í lendingu | 1,0 | ||
Fall í lendingu án þess að fætur lendi fyrst | 1,0 og ógilt | ||
Óvenjuleg splittun fóta | X | ||
Aðrar listrænar villur | X | X | X |
Tæknilegar villur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Frávik frá handstöðu í sveiflum til eða í gegnum handstöðu eða í hringsveiflum | 15°- 30° | >30°- 45° | >45° :ógilt |
Frávik frá fullkominni stöðu í stöðuhlutum | Að 15° | >15 – 30° | >30 – 45° >45° :ógilt |
Pressað frá illa höldnum stöðuhluta | Sama og fyrir stöðuhlutann, mest 0,3 | ||
Ekki full kláraðar skrúfur | Að 30° | >30° – 60° | >60°- 90° >90° :ógilt |
Ónæg hæð eða vídd í heljarstökkum eða flug mómentum | X | X | |
Auka handarstuðningur | X | ||
Sveifla í kraftahluta eða kraftur í sveifluhluta | X | X | X |
Tími í stöðuhlutum (2 sek) | Minna en 2 sek | Ekkert stopp: ógilt | |
Truflun í hreyfingu uppávið | X | X | X |
Lækkun fóta í æfingum að handstöðu (frá upphaflegu stöðu) | 0° – 15° | >15 – 30° | >30 – 45° >45° :ógilt |
Óstöðugleiki eða fall úr handstöðu | X | Sveifla eða mikill óstöðugleiki | |
Fall á eða af áhaldi | 1,0 | ||
Aukasveifla | Hálf / tóm | Heil | |
Aðstoð við æfingu | 1,0 og ógilt | ||
Óundirbúin lending. (Skortur á réttu í líkama fyrir lendingu) | X | X | |
Aðrar tæknilegar villur | X | X | X |
Áhalda dómarareglur
Gólfæfingar
Æfingavillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Æfing lengri en 70 sek | ≤ 2 sek | >2 – 5 sek | >5 sek |
Fótur eða hendi út fyrir rammann | X | ||
Snerting með fótum, höndum, fæti og hendi eða öðrum líkamshluta fyrir utan rammann | X | ||
Lendir allur fyrir utan rammann | X | ||
Notar ekki allt gólfið eða eins og sýnt er í þrepum | X | ||
Notar sömu línu oftar en 2x í röð | X (einu sinni í æfingu) | ||
Ekkert tvöfallt heljarstökk (afstökk fyrir seniora) | X | ||
Ekkert jafnvægi á öðrum fæti (á við um frjálsar og 1.þrep) | X |
Framkvæmdarvillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Ónæg hæð í stökkum | X | X | |
Ónægur liðleiki í fimleika og stöðuhlutum | X | X | |
Æfingar sem lenda í kollhnís | Handarbök í gólf | Án stuðnings á höndum | |
Stoppar í meira en 2 sek fyrir hvert stökk | X | ||
Óstöðug lending (líka í tengingum) | X | X | X |
Einföld skref eða færslur með minna en 180°snúningi | X | ||
Hopp í stuðning eftir heljarstökk | X | ||
Frávik í hreyfingar stefnu | X | X |
Bogahestur
Framkvæmdarvillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Ónæg hæð í klippum og fótsveiflum | X | X | |
Handstaða með greinilegum krafti | X | X | X og ógilt |
Hik eða stopp í handstöðu | X | X | X og ógilt |
Brot í mjöðmum í hringsveiflum | X | X | |
Ónæg rétta í mjöðmum í hringsveiflum, hvert móment | X | ||
Fætur í sundur í æfingum | 0°- 30° | >30° – 60° | >60°- 90° |
Frávik frá stöðu í æfingum eftir endilöngum hesti (cross support) | >45° | >90° | |
Afstökk sem ekki eru í gegnum handstöðu fer undir 30° frá láréttri línu frá öxlum | X | ||
Klipp í handstöðu með beygju í mjöðmum | X | X | X og ógilt |
Klipp í handstöðu án þess að setja fætur saman | ≤ axla breidd | > axla breidd | |
Auka fótsveifla í byrjun án þess að fótur fari yfir hestinn | X | ||
Óstöðugleiki í handstöðu afstökki, erfiðleikar í snúningum | X | X | |
Fætur lækka í handstöðu æfingum (frá upphafsstöðu lækkunar) | 0° – 15° | 16° – 30° | 31°-45° >45° : ógilt |
Hringir
Æfingavillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Engin sveifla í handstöðu | X |
Framkvæmdarvillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Fætur sundur eða önnur slæm framkvæmd á leið upp í hringina | X | ||
Sveifla áður en æfing hefst | X | ||
Þjálfari gefur keppenda sveiflu | X | ||
Tóm aftursveifla | X | ||
Hægt, truflun eða stuðningur í Jonasson eða Yamawaki | X | X | X og ógilt |
Stopp lengur en 2 sek í óskráðri æfingu | X | ||
Villa í samsetningu | X | ||
Yfirgrip í kraftaæfingu, hvert skipti | X | ||
Bognar hendur í eða á leiðinni í kraftaæfingu | X | X | X |
Bognar hendur í stöðu eða í pressu í kraftaæfingu | X | X | X |
Kaplar eða vírar snertir með höndum, fótum eða öðrum líkamshluta | X | ||
Ná jafnvægi eða fá stuðning frá vírum | X og ógilt | ||
Fall úr handstöðu | X og ógilt | ||
Of mikið sveifla á hringjum, í hverju móment | X | ||
Pressa úr styrk í styrk úr of hárri stöðu (á líka við næsta móment) | X | X | |
Hendur snerta eða styðja við líkama í flugvél (Swallow) | X | X | |
Sveifla með styrk | X | X |
Stökk
Æfingavillur
Villa | Afleiðing |
---|---|
Lent eða snert með fæti eða hendi fyrir utan lendingarsvæði | -0,1 |
Snerting með fótum, höndum, fæti og hendi eða öðrum líkamshluta fyrir utan lendingarsvæði | -0,3 |
Lent beint fyrir utan lendingarsvæði | -0,3 |
Lengra en 25m tilhlaup | -0,5 |
Ólöglegt eða ógilt stökk | 0,0 í einkunn fyrir stökkið |
Öryggispúði ekki notaður í arabastökkum á bretti | 0,0 í einkunn fyrir stökkið |
Endurtekning á fyrra stökki í úrslitum | 0,0 í einkunn fyrir stökkið |
Endurtekning á stökkhóp í úrslitum | -2,0 í frádrátt fyrir seinna stökkið |
Fleiri en 2 stökk framkvæmd í upphitun | -0,3 tekið af fyrsta stökki, ef tvö eru framkvæmd |
Auka tilhlaup |
Framkvæmdarvillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Framkvæmd í 1. fasa | X | X | X |
Tæknivillur í 1. fasa | X | X | X |
Fer ekki gegnum lóðrétta stöðu (frávik frá handstöðu) | X | X | X |
Frávik frá handstöðu í stuðningsfasa (yfirslag eða Tsukahara) | ≤30° | >30°-60° | |
Framkvæmd í 2. fasa | X | X | X |
Tæknivillur í 2. fasa | X | X | X |
Skortir hæð, ekki greinileg hækkum í afsvifi | X | X | X |
Óundirbúin lending (réttir ekki úr líkama fyrir lendingu) | X | X | |
Djúp lendingarstaða með mjaðmir fyrir neðan hné | X |
Tvíslá
Æfingavillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Upphitunartími ekki virtur (50 sek) | X | -1,0 á lið í liðakeppni |
Framkvæmdarvillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Æfing byrjuð á öðrum fæti en ekki báðum | X | ||
Tóm aftursveifla | X | ||
Óstjórnuð stutt handstaða á 1 eða 2 rám | |||
Chiarlo æfingar með of mikið bil á milli handa eða skakka líkamsstöðu | X | X | X |
Æfing áður en komið er á ránna | X | ||
Ekki opnað (rétt úr líkama) nægjanlega áður en lent er í láréttri stöðu á rám úr heljarstökkum | X | X | X |
Skref eða aðlögun handa í handstöðu | X (hvert skipti) | ||
Moy og risa æfingar með bogna fætur fyrir lárétta stöðu | X | X | |
Langkippur með bognar fætur eftir Bhavsar eða svipaðar æfingar | X |
Svifrá
Framkvæmdarvillur
Villa | Lítil 0,1 | Meðal 0,3 | Stór 0,5 |
---|---|---|---|
Fætur sundur eða önnur slæm framkvæmd á leið upp á svifránna | X | ||
Skert sveifla eða stopp í handstöðu jafnt sem annars staðar | X | X | |
Skortur á hæð í flugæfingum | X | X | |
Frávik frá réttri stefnu æfinga | ≤ 15° | > 15° | |
Tóm aftursveifla | X | ||
Ólöglegar æfingar eða spyrnt með fótum í rá | X | ||
Bognar hendur þegar gripið er í rá eftir flugæfingar | X | X | |
Bogin hné í sveiflum gegnum botn | X hvert skipti | X hvert skipti | |
Æfing sem heldur ekki áfram í áætlaða átt | X og ógilt | ||
Flugæfing með heljarstökki yfir ránna sem heldur ekki áfram í risa | X | ||
Frávik frá handstöðu í innkomu í Endo, Stalders, Weilers og Adlers | X | ||
Auka sveifla í byrjun æfingar | X |