- Fimleikastiginn er gerður til 4. ára í senn og fylgir breytingum á reglum FIG
- Keppandi fær þrep viðurkennt þegar ákveðnum stigafjölda í fjölþraut er náð. Með því að fá þrep viðurkennt hefur keppandi formlega
lokið þrepinu. Ber honum þá að færast upp um þrep á næsta keppnistímabili.- Einungis er hægt að fá þrep viðurkennt með stigum í fjölþraut á mótum á vegum FSÍ. Þau mót eru:
Haustmót, Þrepamót, Bikarmót og Íslandsmót í þrepum. - Stigafjöldi í fjölþraut til þess að öðlast viðurkenningu á þrepi fer eftir Kröfum móta sem TK sendir út á ári hverju. Gefið er út að
vori ár hvert hverjir hafa náð þrepinu. - Við 18 ára aldur hefja menn keppni eftir fullorðins reglum FIG og keppa því ekki lengur í Íslenska fimleikastiganum.
- Einungis er hægt að fá þrep viðurkennt með stigum í fjölþraut á mótum á vegum FSÍ. Þau mót eru:
- Keppanda er leyfilegt að færa sig upp um þrep á keppnistímabili hafi hann sýnt fram á nægilega góð tök á því þrepi sem hann ætlar að
fara úr. Ekki er hægt að færast niður um þrep þegar keppandi hefur einu sinni fært sig upp um þrep og keppt í því á móti á vegum FSÍ. - Keppendur 12 til 18 ára eiga þess kost að keppa í frjálsum æfingum samhliða keppni þrepunum til 18 ára aldurs. Reglur FIG í keppni
unglinga hafa opnað þennan möguleika fyrir keppendum í þrepunum en reglurnar eiga við um keppendur á aldrinum 14 – 18 ára en þær
eru líka notaðar í keppni í frjálsum æfingum á aldursbilinu 12 – 14 ára, með nokkrum undanþágum - Þátttökuréttur á Íslandsmóti í þrepum fer eftir Kröfum móta sem TK sendir út á ári hverju.
- Þjálfarar og dómarar bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér innihald fimleikastigans og þær breytingar sem kunna að verða á framkvæmd
þrepa og dómgæslu þeirra. Þjálfarar skulu mæta undirbúnir í stiganum á hvert mót og bera sjálfir ábyrgð á framkvæmd keppenda sinna.
Þjálfarar geta komið kvörtunum á framfæri við yfirdómara mótsins eftir framkvæmd keppenda síns áður en næsta umferð hefst. - TK áskilur sér rétt til breytinga á stiganum ef þörf þykir. Allar breytingar sem gerðar eru á fimleikastiganum eru sendar til aðildarfélaga
FSÍ með tölvupósti og er meginreglan sú að breytingar verði aðeins gerðar eftir lok hvers keppnistímabils.