Dómgæsla

Tækninefnd karla

Tækninefnd í áhaldafimleikum karla FSÍ (TK) stendur fyrir dómaranámskeiðum og útskrifar dómara sem mega dæma þrep hins íslenska fimleikastiga. Dómgæsla og aðrar reglur sem líta að dómurum taka sem fyrr mið af gildandi útgáfu af Code of Points (COP) útgefið af Alþjóða fimleikasambandinu (FIG).

Skyldur dómara

  • Dómarafundur er haldinn á keppnisstað klukkustund áður en keppni hefst.
  • Alþjóðlegur dómaraklæðnaður er gráar buxur, ljós skyrta, bindi og dökkblár jakki.
  • Á FSÍ mótum er leyfilegt að dómarar klæðist dökkum buxum, ljósri skyrtu og dökkleitum jakka, bindi væri kostur en ekki skylda.
Tourist taking photo of a building
Windows of a building in Nuremberg, Germany

Skyldur yfirdómara

  • Yfirdómari er útnefndur af TK fyrir hvert mót og sér um að leysa vafaatriði sem kunna að koma upp á mótsstað.
  • Úrlausn vafaatriða skal tilkynnt til tækninefndar, svo að TK geti leitað leiða til að koma í veg fyrir slík atriði í framtíðinni.
  • Hann hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á allri dómgæslu á mótinu ásamt því að sjá til þess að skipulagi TK sé framfylgt.
  • Hann heldur dómarafund og yfirfer áhöld á mótsstað.
  • Yfirdómari er til staðar þar til verðlaunaafhendingu er lokið.

Störf dómara

  • Stefnt skal að því að aldrei séu færri en 2 dómarar í dómaragengi og sé þess einhver kostur aldrei færri en 3 dómarar í 2. og 1. þrepi.
  • D dómarar eru ábyrgir fyrir upphafseinkunn / D einkunn.
  • E dómarar sjá um að dæma framkvæmd / E einkunn.
  • Yfirdómari á áhaldi er ábyrgur fyrir upphafseinkunn, ávarpar keppendur fyrir keppni á sínu áhaldi og sér til þess að ritari, tímavörður og línuverðir sinni sínum störfum.
  • Yfirdómari áhalds er oddamaður ef upp koma vafaatriði og kallar á yfirdómara ef nauðsyn krefur.
  • Yfirdómari situr við hlið ritara í tveggja manna dómaragengi, en í miðju ef dómarar eru fleiri.
  • Yfirdómari á áhaldi er til staðar þar til verðlaunaafhendingu er lokið.
Tourist taking photo of a building
Windows of a building in Nuremberg, Germany

Uppbygging einkunnar

  • Einkunn í áhaldafimleikum byggist upp á tveimur einkunnum, D einkunn og E einkunn.
  • D einkunn samanstendur af erfiðleikagildum, sérkröfum og bónusum fyrir samtengingar.
  • E einkunn byrjar í 10,0 og frá henni dragast framkvæmdarvillur.
  • Frádrættir geta verið: 0,1, 0,3 og 0,5, fyrir fall er tekið 1,0 frá.
  • Meðaltal E einkunna er fundið og lagt við D einkunn til að fá lokaeinkunn.
  • D dómarar geta einnig starfað sem E dómarar.
  • Allur almennur frádráttur á framkvæmdarhluta æfinga, svo sem í stöðuhlutum og sveifluhlutum, er samkvæmt FIG og er vísað í frádráttartöflur COP í sambandi við þær villur.
  • Til hægðarauka hafa frádráttartöflurnar verið þýddar og settar í Íslenska fimleikastigann.
  • Komi upp ósamræmi á milli þýðingar og COP, skal notast við töflurnar úr COP.
  • Að auki eru sérstakir frádrættir fyrir Fimleikastigann sem finna má í sér töflu eða með lýsingu æfinga á áhöldum.

Allar athugasemdir, spurningar eða ábendingar varðandi fimleikastigann skulu sendar á netfangið fsi@fimleikasamband.is og þurfa að berast með góðum fyrirvara fyrir mót á vegum FSÍ.
Æfingar stigans eru gefnar út á myndbandi á internetinu og í þessu handriti. Rísi ágreiningur vegna túlkunnar á framkvæmd æfinga ber að fylgja texta handritsins. Komi upp vafaatriði á mótum FSÍ er það í verkahring yfirdómara mótsins að taka ákvarðanir um niðurstöðu, komi það hvergi fram í gögnum Fimleikastigans.

Almennar dómarareglur

Þýtt úr Code of Points

Reglur varðandi hegðun þjálfara og keppanda

BrotRefsing
Brot á búningareglum. Fimleikabolur, síðar buxur og sokkar á áhöldum. Stuttar buxur leyfðar á stökki og gólfi. Vera með rétt keppnisnúmer0,3 af heildar lokaeinkunn
Virðir ekki upphitunartíma0,3
Heilsar ekki dómara eða endar ekki æfingu0,3 í hvert sinn
Hefur ekki æfingu innan 30 sek frá merki dómara0,3
Hefur ekki æfingu innan 60 sek frá merki dómaraÆfingu lokið
Hefur ekki æfingu innan 30 sek frá falli0,3
Hefur ekki æfingu innan 60 sek frá falliÆfingu lokið
Fer aftur að áhaldi eftir að æfingu lýkur0,3
Þjálfari talar við fimleikamann í æfingu0,3
Önnur hegðun sem ekki er við hæfi í íþróttakeppni (óíþróttamannsleg hegðun) 0,3

Brot á reglum í liðakeppni

BrotRefsing
Ekki keppt í réttri röð á áhaldi1,0 á hverju áhaldi
Ekki keppt í réttum búningi1,0 af heildareinkunn liðs
Hegðun þjálfara sem ekki á við í íþróttakeppni (óíþróttamannsleg hegðun)1,0 í fyrsta sinn, 1,0 í annað sinn og þjálfara vísað af keppnissvæði

Brot á áhaldareglum

BrotRefsing
Þjálfari þar sem hann má ekki vera0,5
Slæm meðferð á áhöldum (magnesíum)0,5
Auka dýnur án leyfis yfirdómara0,5
Ekki notaðar öryggisdýnur þar sem þær eiga að vera0,5
Þjálfari færir til dýnur í miðri æfingu0,5
Áhald hækkað án leyfis0,5
Gormum bætt við eða teknir úr bretti0,5

Önnur brot í einstaklingskeppni

BrotRefsing
Fjarverandi frá keppnissvæði án leyfisFær ekki að ljúka keppni
Fjarverandi í verðlaunaafhendingu á leyfisÁrangur ekki skráður í liða og
einstaklingskeppni
Hefur æfingu áður en dómari gefur merkiFær 0,0 í einkunn á viðkomandi áhaldi

Sérstakur frádráttur í Fimleikastiganum

BrotRefsing
Æfingar ekki gerðar í réttri röð0,3
Auka sveifla á hringjum eða tvíslá í 4.,5. Og 6.þrepi.
Auka krets á boga eða svepp
Ekki tæknileg villa, en tekið frá fyrir
framkvæmd

Frádráttartafla fyrir of fáar æfingar

BrotRefsing
4 æfingum sleppt-0,5
5 æfingum sleppt-1,0
6 æfingum sleppt-2,0
7 æfingum sleppt-3,0
Engin æfing framkvæmd-10,0

Framkvæmd og listfengi

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Ekki greinileg staða (samanbogin, vinkluð eða bein)XXX
Laga grip handa eða gripX
Gengið eða hoppað í handstöðu í hvert sinn (hvert skref/eða hopp)X
Áhald eða gólf snertX
Áhald eða gólf snert með kraftiX
Fimleikamaður snertur en ekki
aðstoðaður í æfingu
X
Rof á æfingu án þess að falla á eða af áhaldiX
Bognir fætur, bognar hendur, fætur í sundurXXX
Léleg líkamsstaða eða líkamsstaða aðlöguð í endastöðuXXX
Heljarstökk með fætur eða hné í sundur≤ axla breidd> axla breidd
Fætur sundur í lendingu≤ axla breidd> axla breidd
Ójafnvægi eða litlar aðlaganir á fótum eða miklar sveiflur handa í lendinguX
Misst jafnvægi í lendingu án þess að detta eða fá stuðning með höndum (mest 1,0 í heild fyrir skref og hopp)Lítið ójafnvægi
Lítið skref eða hopp 0,1
hvert
Stórt skref eða hopp eða dýna
snert með 1 -2 höndum
Fall eða stuðningur með 1 eða 2 höndum í lendingu1,0
Fall í lendingu án þess að fætur
lendi fyrst
1,0 og ógilt
Óvenjuleg splittun fótaX
Aðrar listrænar villurXXX

Tæknilegar villur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Frávik frá handstöðu í sveiflum til eða í gegnum handstöðu eða í hringsveiflum15°- 30°>30°- 45° >45° :ógilt
Frávik frá fullkominni stöðu í stöðuhlutumAð 15°>15 – 30°>30 – 45°
>45° :ógilt
Pressað frá illa höldnum stöðuhlutaSama og fyrir stöðuhlutann, mest 0,3
Ekki full kláraðar skrúfurAð 30°>30° – 60° >60°- 90°
>90° :ógilt
Ónæg hæð eða vídd í heljarstökkum eða flug mómentumXX
Auka handarstuðningurX
Sveifla í kraftahluta eða kraftur í sveifluhlutaXXX
Tími í stöðuhlutum (2 sek)Minna en 2 sekEkkert stopp:
ógilt
Truflun í hreyfingu uppáviðXXX
Lækkun fóta í æfingum að handstöðu (frá upphaflegu stöðu)0° – 15°>15 – 30°>30 – 45°
>45° :ógilt
Óstöðugleiki eða fall úr handstöðuXSveifla eða
mikill
óstöðugleiki
Fall á eða af áhaldi1,0
AukasveiflaHálf / tómHeil
Aðstoð við æfingu1,0 og ógilt
Óundirbúin lending. (Skortur á
réttu í líkama fyrir lendingu)
XX
Aðrar tæknilegar villurXXX

Áhalda dómarareglur

Gólfæfingar

Æfingavillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Æfing lengri en 70 sek≤ 2 sek>2 – 5 sek>5 sek
Fótur eða hendi út fyrir rammannX
Snerting með fótum, höndum, fæti og hendi eða öðrum líkamshluta fyrir utan rammannX
Lendir allur fyrir utan rammannX
Notar ekki allt gólfið eða eins og
sýnt er í þrepum
X
Notar sömu línu oftar en 2x í röðX (einu sinni í æfingu)
Ekkert tvöfallt heljarstökk (afstökk fyrir seniora)X
Ekkert jafnvægi á öðrum fæti (á við um frjálsar og 1.þrep)X

Framkvæmdarvillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Ónæg hæð í stökkumXX
Ónægur liðleiki í fimleika og
stöðuhlutum
XX
Æfingar sem lenda í kollhnísHandarbök í gólfÁn stuðnings á höndum
Stoppar í meira en 2 sek fyrir hvert stökkX
Óstöðug lending (líka í tengingum)XXX
Einföld skref eða færslur með minna en 180°snúningiX
Hopp í stuðning eftir heljarstökkX
Frávik í hreyfingar stefnuXX

Bogahestur

Framkvæmdarvillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Ónæg hæð í klippum og fótsveiflum XX
Handstaða með greinilegum kraftiXXX og ógilt
Hik eða stopp í handstöðuXXX og ógilt
Brot í mjöðmum í hringsveiflumXX
Ónæg rétta í mjöðmum í
hringsveiflum, hvert móment
X
Fætur í sundur í æfingum0°- 30°>30° – 60°>60°- 90°
Frávik frá stöðu í æfingum eftir endilöngum hesti (cross support)>45°>90°
Afstökk sem ekki eru í gegnum handstöðu fer undir 30° frá láréttri línu frá öxlumX
Klipp í handstöðu með beygju í mjöðmumXXX og ógilt
Klipp í handstöðu án þess að setja fætur saman≤ axla breidd> axla breidd
Auka fótsveifla í byrjun án þess að fótur fari yfir hestinnX
Óstöðugleiki í handstöðu afstökki, erfiðleikar í snúningumXX
Fætur lækka í handstöðu æfingum (frá upphafsstöðu lækkunar)0° – 15° 16° – 30°31°-45°
>45° : ógilt

Hringir

Æfingavillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Engin sveifla í handstöðuX

Framkvæmdarvillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Fætur sundur eða önnur slæm framkvæmd á leið upp í hringinaX
Sveifla áður en æfing hefstX
Þjálfari gefur keppenda sveifluX
Tóm aftursveiflaX
Hægt, truflun eða stuðningur í Jonasson eða YamawakiXXX og ógilt
Stopp lengur en 2 sek í óskráðri æfinguX
Villa í samsetninguX
Yfirgrip í kraftaæfingu, hvert skiptiX
Bognar hendur í eða á leiðinni í kraftaæfinguXXX
Bognar hendur í stöðu eða í pressu í kraftaæfinguXXX
Kaplar eða vírar snertir með höndum, fótum eða öðrum líkamshlutaX
Ná jafnvægi eða fá stuðning frá vírumX og ógilt
Fall úr handstöðu X og ógilt
Of mikið sveifla á hringjum, í hverju mómentX
Pressa úr styrk í styrk úr of hárri stöðu (á líka við næsta móment)XX
Hendur snerta eða styðja við líkama í flugvél (Swallow)XX
Sveifla með styrkXX

Stökk

Æfingavillur

VillaAfleiðing
Lent eða snert með fæti eða hendi fyrir utan lendingarsvæði-0,1
Snerting með fótum, höndum, fæti og hendi eða öðrum líkamshluta fyrir utan lendingarsvæði-0,3
Lent beint fyrir utan lendingarsvæði-0,3
Lengra en 25m tilhlaup-0,5
Ólöglegt eða ógilt stökk0,0 í einkunn fyrir stökkið
Öryggispúði ekki notaður í arabastökkum á bretti0,0 í einkunn fyrir stökkið
Endurtekning á fyrra stökki í úrslitum0,0 í einkunn fyrir stökkið
Endurtekning á stökkhóp í úrslitum-2,0 í frádrátt fyrir seinna stökkið
Fleiri en 2 stökk framkvæmd í upphitun-0,3 tekið af fyrsta stökki, ef tvö eru framkvæmd
Auka tilhlaup

Framkvæmdarvillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Framkvæmd í 1. fasaXXX
Tæknivillur í 1. fasaXXX
Fer ekki gegnum lóðrétta stöðu (frávik frá handstöðu)XXX
Frávik frá handstöðu í stuðningsfasa (yfirslag eða Tsukahara)≤30° >30°-60°
Framkvæmd í 2. fasaXXX
Tæknivillur í 2. fasaXXX
Skortir hæð, ekki greinileg hækkum í
afsvifi
XXX
Óundirbúin lending (réttir ekki úr líkama fyrir lendingu)XX
Djúp lendingarstaða með mjaðmir fyrir neðan hnéX

Tvíslá

Æfingavillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Upphitunartími ekki virtur (50 sek)X-1,0 á lið í liðakeppni

Framkvæmdarvillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Æfing byrjuð á öðrum fæti en
ekki báðum
X
Tóm aftursveiflaX
Óstjórnuð stutt handstaða á 1 eða 2 rám
Chiarlo æfingar með of mikið bil á milli handa eða skakka líkamsstöðuXXX
Æfing áður en komið er á ránnaX
Ekki opnað (rétt úr líkama) nægjanlega áður en lent er í láréttri stöðu á rám úr heljarstökkumXXX
Skref eða aðlögun handa í handstöðuX (hvert skipti)
Moy og risa æfingar með bogna fætur fyrir lárétta stöðuXX
Langkippur með bognar fætur eftir Bhavsar eða svipaðar æfingarX

Svifrá

Framkvæmdarvillur

VillaLítil 0,1Meðal 0,3Stór 0,5
Fætur sundur eða önnur slæm framkvæmd á leið upp á svifránnaX
Skert sveifla eða stopp í handstöðu
jafnt sem annars staðar
XX
Skortur á hæð í flugæfingumXX
Frávik frá réttri stefnu æfinga≤ 15°> 15°
Tóm aftursveiflaX
Ólöglegar æfingar eða spyrnt með fótum í ráX
Bognar hendur þegar gripið er í rá eftir flugæfingarXX
Bogin hné í sveiflum gegnum botnX hvert skiptiX hvert skipti
Æfing sem heldur ekki áfram í áætlaða áttX og ógilt
Flugæfing með heljarstökki yfir ránna sem heldur ekki áfram í risaX
Frávik frá handstöðu í innkomu í Endo, Stalders, Weilers og AdlersX
Auka sveifla í byrjun æfingarX